Um félagið

Vináttufélagið Ísland-Kórea (VÍK) er fremst frjálsra félagasamtaka á Íslandi í menningartengslum og samstöðu með Kóreska alþýðulýðveldinu gegn heimsvaldastefnu Bandaríkjanna og þeirri hernaðarógn sem af þeim stafa í Asíu og Kyrrahafssvæðinu.

Félagið var stofnað sumarið 2022, með Sunnevu Náttsól Maríu í embætti formanns og Míu Marselínu Alexu Guðmundsdóttur í embætti varaformanns, í samráði við Sendiráð Alþýðulýðveldisins Kóreu í Svíþjóð og systurfélag í Pjöngjang sem heyrir undir Nefnd Kóreu fyrir menningartengsl við erlend ríki—KCCRFC.

Það er okkar von og vilji að að bæði þegnar Íslands og Alþýðulýðveldisins Kóreu geti ræktað sín á milli varanlega vináttu, menningartengsl og samstöðu gegn heimsvaldastefnu Bandaríkjanna. Við viljum einnig stuðla að fræðslu um kóreskt stjórnarfar og samfélag í nútíma, sem og um almenna sögu Alþýðulýðveldisins Kóreu.

VÍK eru sjálfstæð og frjáls félagasamtök. Félagið er ekki armur í alþjóðlegu kóresku vináttusamtökunum „Korean Friendship Association“ (KFA) eða öðrum sambærilegum alþjóðlegum félagasamtökum.

Núverandi félagsstjórn:

Sunneva Náttsól Maríu, formaður

Kristinn Hannesson, varaformaður og aðalritari

Kristrún Kristjánsdóttir, vefstjóri