Author: Sunneva Náttsól Maríu

  • Júní 1950: Gagnsókn Kóreska alþýðuhersins og frelsun Seúl

    Júní 1950: Gagnsókn Kóreska alþýðuhersins og frelsun Seúl

    Fyrir 76 árum, þann 28. júní, var Seúl frelsuð af Kóreska alþýðuhernum undan innrásarher bandaríska heimsveldisins og Suður-Kóreu.

    25. júní árið 1950 hófu suður-kóreskar hersveitir, studdar af Bandaríkjunum, innrás norður yfir 38. breiddargráðuna. Bandaríkin spáðu því að Alþýðulýðveldið Kórea myndi falla innan 72 klukkustunda.

    Undir virkum stuðningi Bandaríkjanna hófu suður-kóreskar hersveitir innrás í Alþýðulýðveldið Kóreu

    Kim Il Sung, forsætisráðherra Alþýðulýðveldisins Kóreu, boðaði þá til neyðarfundar og skipaði Kóreska alþýðuhernum að hefja tafarlausa gagnsókn, og reyndist það fordæmalaust afrek. Þrátt fyrir lítið varnarlið við landamærin, og her sem einungis var tilbúinn undir varnaraðgerðir, hófst gagnsóknin um alla víglínuna. Einungis 90 mínútum síðar hafði innrásin verið stöðvuð og suður-kóresku hersveitirnar voru á undanhaldi.

    Kim Il Sung valdi vesturhluta víglínunnar í átt að Uíjongbú-Seúl, þar sem aðalher Suður-Kóreu var saman kominn, sem aðalárásarstefnu, og lét meginhersveitir Kóreska alþýðuhersins hefja hraða aðgerð til að frelsa Seúl.

    Liðsmenn Kóreska alþýðuhersins í broddi fylkingar í mótaðgerðum sínum gegn innrásarhernum

    Á þremur dögum ýmist felldu eða handsömuðu sveitir Kóreska alþýðuhersins um 60.000 óvinahermenn og komust yfir 43.000 vopn, 1.400 vörubíla, 142 fallbyssur, skip og flugvélar. Suður-kóreski herinn missti meira en helming herafla sinna.

    28. júní 1950 – Kóreska alþýðuhernum fagnað í Seúl eftir að frelsa borgina undan fasisma og hernámi bandaríska heimsveldisins

    Suður-kóreski herinn harmaði að „meira en helmingur alls hersins hafi fallið á þremur dögum fyrir fall Seúl,“ og að „herstjórnin gat aðeins staðfest 22.000 í herbók sem hafði innihaldið yfir 98.000.“

    Þessu afreki Kóreska alþýðuhersins hefur verið lýst sem fordæmalausu í stríðssögunni og sem kraftaverki sem Bandaríkin gátu engan vegin séð fyrir.

    Fáni Alþýðulýðveldisins Kóreu blakir á þaki Þinghúsinu í Seúl
  • Kóreuskýrslan: Glæpir Bandaríkjahers „taka fram glæpum þeim, sem Hitlersnazistarnir frömdu meðan á hernámi þeirra stóð í Evrópu.“

    Kóreuskýrslan: Glæpir Bandaríkjahers „taka fram glæpum þeim, sem Hitlersnazistarnir frömdu meðan á hernámi þeirra stóð í Evrópu.“

    Við höfum gert aðgengilega hér á skjalasafni síðunnar Kóreuskýrsluna svokölluðu, eða „Skýrslu sendinefndar Alþjóðasambands lýðræðissinnaðra kvenna, er send var til að kynna sér ofbeldi og hryðjuverk unnin af hermönnum Bandaríkjanna og Syngman Rhee í Kóreu“.

    Skýrslan kom upprunalega út árið 1951 á ensku, frönsku, rússnesku, kínversku og kóresku og hefur verið þýdd yfir á fjölda tungumála. Skýrslan, sem á ensku er titluð „We accuse!“, kom út í íslenskri þýðingu sama ár og var gefin út af Menningar- og friðarsamtökum íslenzkra kvenna, undir titlinum „Kóreuskýrslan“.

    Í skýrslunni eru skráð niður hin ýmsu hryðjuverk og stríðsglæpir Bandaríkjahers í Alþýðulýðveldinu Kóreu, þar sem meðal annars kemur fram hvernig Bandaríkjamenn og suðurkóreskir liðsmenn einræðisherrans Syngman Rhee stunduðu kerfisbundnar pyntingar á föngum, frömdu hópmorð gegn heilu fjölskyldunum þar sem saklaust fólk var lokað inni og brennt lifandi; allt frá eldri borgurum og niður í ungabörn.

    Í ensku útgáfu skýrslunnar má finna ljósmyndir sem teknar voru af meðlimum nefndarinnar, en þar má m.a. sjá rústir af kirkjum, musterum, skólum og öðrum byggingum sem jafnaðar voru við jörðu í sprengjuregni Bandaríkjahers.

    Haft var eftir vitnum í skýrslunni en ein konan, Pak Yo Suk, sagði:

    „Við héldum að Ameríkumenn væru kristnir menn, göfugmenni. Við héldum ekki að þeir myndu drepa fólk af þvílíkri grimmd”.

    Í niðurstöðum skýrslunnar koma m.a. fram eftirfarandi punktar.

    „Íbúar Kóreu eru af hernámsliði Bandaríkjamanna ofurseldir miskunnarleysi og skipulögðum eyðileggingarherferðum, sem ekki aðeins eru andstæðar allri mannúð, heldur einnig öllum hernaðarháttum og reglum um stríðsaðferðir eins og þær hafa verið samþykktar á ráðstefnum í Haag og Genf. Hernaðurinn hefur verið háður á þennan hátt:

    a. Með skipulagðri eyðileggingu á matvælum, matvælabirgðum, matvælaverksmiðjum, skógum, ávaxtagróðri og ökrum, sem og fullþroskaðri uppskeru, er kveikt var í með íkveikjusprengjum. Einnig var ráðizt á bændur, sem unnu á ökrum með uxum sínum og þeir drepnir með vélbyssuskothríð frá lágfleygum flugvélum. Með þessum aðgerðum er öll kóreanska þjóðin dæmd til hungursneyðar.

    b. Með skipulagðri eyðingu á borg eftir borg og bæ eftir bæ, sem flestar eru þannig, að óhugsanlegt er, að þær hafi nokkra hernaðarlega þýðingu og ekki einu sinni sem iðnaðarstöðvar. Tilgangur þessarar eyðileggingar er augljóslega sá, að brjóta kóreönsku þjóðina á bak aftur, bæði andlega og líkamlega. Í hinum látlausu loftárásum eru íbúðarhús, sjúkrahús, skólar o. s. frv. markvisst eyðilögð. Jafnvel bæir, sem fyrir löngu eru ekki annað en öskuhrúgur, en íbúarnir, sem af komust, búa í holum og gjótum rústanna, þessir bæir eru enn skotspónn sprengjuflugvélanna.

    c. Með fyrirfram skipulagningu á notkun þeirra vopna, gegn hinum friðsömu íbúum, sem bönnuð eru samkvæmt alþjóðasamningum. Þessi vopn eru t. d. íkveikjusprengjur, olíusprengjur, napalmsprengjur, tímasprengjur og með stöðugri vélbyssuskothríð á fólkið úr lágfleygum flugvélum.

    d. Með svívirðilegri útrýmingu kóreönsku þjóðarinnar. Í landshlutum, sem voru um stundarsakir hernumdir af Bandaríkjamönnum og her Syngman Rhee, voru hundruð þúsunda íbúa, heilar fjölskyldur, frá gömlu fólki niður í smábörn, pyntuð, barðar til bana, brenndar og grafnar lifandi. Þúsundir annarra hafa farizt af hungri og kulda í yfirfylltum fangelsum, sem þeir voru settir í án nokkurrar ákæru, án rannsóknar, yfirheyrslu eða dóms.

    Þessi múgmorð og pyntingar taka fram glæpum þeim, sem Hitlersnazistarnir frömdu meðan á hernámi þeirra stóð í Evrópu.

    Skýrslan í heild sinni er nú aðgengileg á stafrænu formi hér á vefíðunni, bæði á íslensku og á ensku, í skjalasafni okkar. Báðar útgáfur er hægt að lesa beint í vafra eða hala niður á PDF, EPUB eða á Markdown formi.

  • Talsmaður Utanríkisráðuneytis Alþýðulýðveldisins Kóreu um Fund QUAD utanríkisráðherra

    Talsmaður Utanríkisráðuneytis Alþýðulýðveldisins Kóreu um Fund QUAD utanríkisráðherra

    Pjöngjang, 28. maí (KCNA) — Talsmaður Utanríkisráðuneytis Alþýðulýðveldisins Kóreu gaf eftirfarandi svar við spurningu KCNA 28. maí. Spurningin laut að því að nýlegan fund QUAD utanríkisráðherra, undir forystu Bandaríkjanna, lauk með opinberri „sameiginlegri yfirlýsingu“ sem inniheldur gagnrýni á Alþýðulýðveldið Kóreu:

    „Sameiginlega yfirlýsingin“ ekki aðeins raskaði raunverulega brýnum og alvarlegum áskorunum og ógnum sem ríkin í Asíu-Kyrrahafssvæðinu standa frammi fyrir, heldur afhjúpaði hún einnig skýr fjandsamleg áform gegn tilteknum ríkjum.

    QUAD talaði um styrkingu samstarfs á meðan það lýsti yfir „áhyggjum“ af ástandinu í Suður-Kínahafi og Austur-Kínahafi. Það miðar að því að réttlæta aðgerðir Japans til endurvopnunar og eignar Ástralíu á kjarnorkukafbáti, sem vekja áhyggjur alþjóðasamfélagsins.

    Stofnun „Frumkvæðisramma um mikilvæg steinefni“ nýlega, sem QUAD samþykkti, inniheldur einnig útilokandi og andstætt eðli þar sem hún er í samræmi við utanríkisstefnu núverandi stjórnar Bandaríkjanna til að halda einveldisstöðu í alþjóðlegu framboðskeðjunni með því að víkka öryggishugtakið til efnahagssviðsins.

    Sérstaklega tóku QUAD meðlimir undir forystu Bandaríkjanna til máls gegn lögmætri beitingu fullveldisréttinda Alþýðulýðveldisins Kóreu og kölluðu eftir „kjarnorkuvopnaleysi“. Þetta sannar að QUAD er ekkert annað en pólitískt og diplómatískt tæki sem þjónar stefnu Bandaríkjanna um einpólisvald.

    Skiltið „friður og stöðugleiki“ getur ekki verið leið til að réttlæta stefnu Bandaríkjanna um fjandskaparblokkaskiptingu.

    Utanríkisráðuneyti Alþýðulýðveldisins Kóreu fordæmir og hafnar harðlega fjandsamlegri afstöðu QUAD undir forystu Bandaríkjanna gagnvart Alþýðulýðveldinu Kóreu og öðrum ríkjum á svæðinu, og krefst þess eindregið að það sleppi tilraun sinni til að auka fjandskaparblokkaskiptingu sem eyðileggur frið og stöðugleika á svæðinu.

    Þegar það er sagt skýrt: „Kjarnorkuvopnaleysi“ Alþýðulýðveldisins Kóreu mun aldrei nokkurn tíman gerast.

    Við munum algerlega verja fullveldisréttindi, öryggishagsmuni og þróunarrétt ríkisins sama hvað aðrir segja, og taka virkan þátt í alþjóðlegri viðleitni til að standa gegn myndun útilokunarhópa og fjandskaparblokkaskiptingu á svæðinu og efla gagnkvæmt traust, samstarf, frið og samfarsæld þjóða.

  • Vísir á villigötum í Kóreska Alþýðulýðveldinu: upplýsingastríð heimsvaldastefnunnar

    Vísir á villigötum í Kóreska Alþýðulýðveldinu: upplýsingastríð heimsvaldastefnunnar

    Þann 28. apríl s.l. birti Vísir grein eftir Hólmfríði Gísladóttur með þá sterku fullyrðingu í fyrirsögn að „aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum” í Kóreska alþýðulýðveldinu, með ógagnrýnni vísan í BBC og skýrslu hinna meintu mannréttindasamtaka Transitional Justice Working Group (TJWG).

    Slíkar fyrirsagnir eru alls ekki nýjar af nálinni í meginstraumsfjölmiðlum Vesturlanda. Gjarnan er því haldið fram að í Kóreska alþýðulýðveldinu liggi dauðarefsing við séu íbúar gripnir við neyslu á erlendu skemmtiefni eða við iðkun trúarbragða, þá sérstaklega komi það frá hinu hernumda leppríki Bandaríkjanna sunnan aðskilnaðarlínunnar.

    En hvaðan koma slíkar sögusagnir og hvað er raunverulega hægt að fullyrða þegar talað er um dauðarefsinguna í Kóreska alþýðulýðveldinu? Hver eru þessi meintu mannréttindasamtök? Hvað segja gögnin? Hvað segja kóresk hegningarlög? Heitir það fréttamennska þegar í raun er um að ræða upplýsingahernað?

    Hvað segja lögin?

    Í Kóreska alþýðulýðveldinu ríkir hvorki stjórnleysi né lögleysa. Hinsvegar ríkja þar kerfi og lög sem mótuðust að hluta í kjölfar hinna hryllilegu stríðsátaka þar sem Bandaríska heimsveldið myrti milljónir Kóreubúa. Ég gæti fjallað hér endalaust um Kóreustríðið, stundum einnig nefnt  „gleymda stríðið”, en lykilatriðið hér og nú er að umrætt stríð tók aldrei enda.

    Ekki þykir heldur óeðlilegt að í stríðandi löndum liggi dauðarefsing við hinum alvarlegustu glæpum og svikum. Þetta á a.m.k. jafnt við um Kóreska alþýðulýðveldið og leppríki Bandaríkjanna á Suðurhluta Kóreuskagans.

    Til að byrja með væri eflaust best að fara yfir sjálfa refsilöggjöf Kóreska alþýðulýðveldisins og hvað hún segir um dauðarefsinguna. Í 29. gr. kóreskra hegningarlaga segir:

     „Dauðarefsingin er alvarlegust refsinga, því hún sviptir geranda glæpsins lífi hans eða hennar. Dauðarefsingunni má ekki beita gegn þeim sem voru undir 18 ára aldri er glæpurinn var framinn, og henni má ekki beita gegn óléttum konum.”

    Þá segir ennfremur að eftirfarandi tegundir glæpa geti varðað lífstíðarfangelsi eða dauðarefsingu, en einungis í allra alvarlegustu tilvikum: hryðjuverk (61. gr.), landráð (63. gr.), pólitísk skemmdarverk (65. gr.), svik gegn alþýðu (68. gr.), ólögleg framleiðsla á ópíóðum og öðrum vímuefnum (206. gr.), smygl og ólögleg sala á vímuefnum (208. gr.), og morð af ásetningi (266. gr.).

    Hvergi er þess getið í kóreskum hegningarlögum að eitthvað eins lítilvægt og neysla erlends skemmtiefnis varði við slíka refsingu, og gert er ráð fyrir því að yfirvöld virði gildandi lög rétt eins og í öðrum löndum.

    Enn síður er þess getið að fólk sé látið sæta dómum fyrir trúariðkun, hvað þá hjátrú, en í Kóreska alþýðulýðveldinu er trúariðkun fullkomlega lögleg. Þar starfa þó nokkrar Kristnar kirkjur, a.m.k. ein moska, Búddistaklaustur, Chondóistasöfnuðir, og aðrir trúarsöfnuðir.

    Mynd: Bongsu-kirkja, Pjongjang (vinstri); Kwangbop-klaustur, Pjongjang (hægri)

    Vísir á villigötum

    Í nefndri grein Hólmfríðar Gísladóttur á Vísi er því haldið fram að „flest brotanna sem leiddu til aftöku tengdust trú, hjátrú eða neyslu erlendrar menningar”.

    Í næstu línu er því haldið fram að „tveir táningar hefðu verið dæmdir til tólf ára erfiðisvinnu fyrir að horfa á og dreifa sjónvarpsþáttum frá Suður-Kóreu” árið 2024.

    Þá spyr ég: á okkur virkilega að finnast það trúlegt að einstaklingar séu teknir af lífi fyrir neyslu erlends sjónvarpsefnis, en að á sama tíma fái einstaklingar vægari dóm fyrir dreifingu erlends sjónvarpsefnis?

    Ljóst er að ekkert af þessu varðar þungan refsidóm, hvað þá dauðarefsingu, í laganna skilningi. Samt sem áður er því haldið fram að 385 hafi verið  „teknir af lífi árunum 2011 til 2024, þar af 70 prósent fyrir opnum tjöldum”.

    Nú les ég reglulega kóreska fjölmiðla og ekki hef ég orðið vör við fregnir af beitingu dauðarefsingar  „fyrir opnum tjöldum” síðan stjórnmálamaðurinn Jang Song Thaek var skotinn fyrir landráð og spillingu árið 2013.

    Það er augljóst að hér fer ekki saman hljóð og mynd. Hvaðan koma þá þessar upplýsingar, ef ekki frá Kóreska alþýðulýðveldinu sjálfu?

    Upplýsingastríð heimsvaldastefnunnar

    Þá er best að horfa á heimildina sjálfa sem vísað er til og hverjir standa henni að baki. Hólmfríður, líkt og áður segir, vísar til umfjöllunar BBC um skýrslu sem tekin var saman af hinum meintu mannréttindasamtökum TJWG.

    Vert er að taka það fram að TJWG eru langt frá því að vera hlutlaus aðili en samtökin eru fjármögnuð af fjölmiðlaarmi bandarísku leyniþjónustunnar, þ.e.a.s. National Endowment for Democracy (NED). NED, sem er ríkisrekið batterí úr smiðju CIA, hefur fyrst og fremst það hlutverk að beita upplýsingahernaði, eða áróðri, gegn óvinveittum ríkjum og sjá til þess að áróðurinn lendi á síðum meginstraumsfjölmiðla.

    Ég ætla mér samt ekki að gera ítarlega úttekt á þessu áróðursbatteríi bandaríska heimsveldisins hér, heldur vil ég beina spjótunum gegn skýrslunni sjálfri og innihaldi hennar.

    Strax á bls. 10 kemur fram að skýrslan byggist að hluta til á greinum úr svokölluðum  „Norður Kóreskt-miðuðum fjölmiðlum”. Hvað þýðir það nákvæmlega? Teljast þar með kóreskir ríkismiðlar eða aðrir kóreskir miðlar á borð við Rodong Sinmun eða Pyongyang Times? Eða er þarna einfaldlega átt við vestræna áróðursmiðla, með NED sem bakhjarl; miðla á borð við NKNews og Radio Free Asia?

    Í næstu setningu er talað um svokallað „closed-source dataset” sem byggir á meintum viðtölum við kóreska landráðsmenn sem búsettir eru erlendis. Fyrir okkur sem hafa verið að fylgjast með stöðunni í stríði Bandaríkjanna gegn Íran, Kúbu, og Venesúela, þá ætti þetta að vera okkur afar kunnugleg mynd: fjarhægrimenn sem lofa Vestræna harðstjóra á borð við Donald Trump, einræðisherra Bandaríkjanna, og Benjamin „Netanyahu” Mileikowsky, leiðtoga hryðjuverkasamtakanna Ríkis Ísraels; einstaklingar sem vilja t.d. að heimsveldið og zíónistarnir varpi sprengjum á eigin lönd í nafni Jeffrey Epsteins.

    Ljóst er a.m.k. að gögnin sem um ræðir koma ekki frá Kóreska alþýðulýðveldinu sjálfu, heldur er um að ræða nafnlausar gróusögur og uppspuna vestrænna áróðursmiðla.

    Íslenskir fjölmiðlar og framleiðsla samykkis

    Aðferðir sem þessar hafa verið notaðar til þess að framleiða samþykki fyrir öll stríð sem Bandaríska heimsveldið hefur háð—allt í nafni svokallaðra  „mannréttinda” og „mannréttindasamtaka” með beinu fjármagni frá bandaríska ríkinu.

    Nei, aftökum í Kóreska alþýðulýðveldinu fjölgaði ekki verulega í kórónuveirufaraldrinum. Fólk er ekki tekið af lífi fyrir að neyta erlends skemmtiefnis og fólk er ekki tekið af lífi fyrir iðkun trúarbragða. Ef það væri raunveruleikinn þá væru dregin fram haldbær sönnunargögn en ekki bara nafnlausar slúðursögur.

    Að íslenskir fjölmiðlar skuli apa svona stríðsæsingsáróður beint upp gagnrýnislaust er ekki eitthvað sem við eigum að sætta okkur við, við sem látum okkur sannleikann varða. Að svona fyrirsagnir séu birtar án nánari athugunar er ekki fréttamennska, heldur sorpblaðamennska.

    Þessi grein kom upprunalega út á Neistum þann 30. apríl, 2026