Author: Rodong Sinmun

  • Hrottafengin áform bandarískra heimsvaldasinna afhjúpuð

    Hrottafengin áform bandarískra heimsvaldasinna afhjúpuð

    Enn einn ómanneskjulegur glæpur bandarískra heimsvaldasinna, ásamt ógætnum sprengju- og stórskotaárásum, var hrottafenginn lífefnahernaður. Bandarískir heimsvaldasinnar gerðu lífefnavopn að tóli til heimsyfirráða, þróuðu þau og framleiddu í miklu magni.

    Árið 1925 var samþykktur sáttmáli í Genf um bann við notkun á köfnunar-, eitrunar- og annarra gastegunda og sýklum í stríði. Bandaríkin neituðu stöðugt að undirrita sáttmálann og meira að segja hættu þau endanlega umræðunni um hann á þinginu.

    Á „rannsóknarstofnunum“ sem byggðar voru um öll Bandaríkin undir merkjum „faraldursvarna“, voru lífefnavopn þróuð af fullum krafti til fjöldamorða gegn fólki af ólíkum uppruna, einkum gegn asísku fólki. Þetta var gert samkvæmt kenningu þeirra um að þau gætu einungis náð heimsyfirráðum með því að fyrst leggja Asíu undir sig.

    Bandarískir heimsvaldasinnar gerðu upptæk öll gögn um yfir 8.000 tilraunir með sýkla og eiturgas sem framkvæmdar voru á yfir 3,6 milljónum saklausra manna, ásamt ýmsum tilvísunargögnum, ljósmyndum, skyggnum, teikningum af sýklasprengjum og búnaði, frá stríðsglæpamönnum hinnar alræmdu 731. deildar japanska hersins.

    Bandarískir heimsvaldasinnar, sem hófu innrásarstríð gegn lýðveldinu okkar, hófu þá jafnframt sýklahernaðarframkvæmdir.

    Sýktar skrið- og skordýraleifar

    Uns þeir flúðu frá svæðum sem þeir höfðu hernumið tímabundið, neyddu þeir íbúa út úr húsum sínum með yfirskyni „húsleita“ og dreifðu þar hlutum á þvers og kruss, menguðum af bólusóttarveiru, á heimilum þeirra. Þá notuðu þeir einnig aðrar illvígar aðferðir til að dreifa sjúkdómum. Afleiðingin varð sú að bólusótt braust út á miklum hraða á 35 svæðum, þar á meðal í Pjöngjang, frá miðjum desember árið 1950. Á flótta sínum keyrðu þeir taugaveikisjúklinga úr bandaríska hernum og leppher Lýðveldisins Kóreu, inn í vegahús til að sýkja íbúa með fullum ásetningi.

    Sýklasprengjur af ýmsum stærðum og gerðum voru framleiddar í þar til gerðum verksmiðjum í Tókýó og Kjúshú í Japan og fluttar til vopnageymslna í Púsan og Tægú í leppríkinu Lýðveldinu Kóreu. Bandarískir heimsvaldasinnar völdu sýkla með mikla smithættu og banatíðni, og með mismunandi ræktunartíma. Þetta var birtingarmynd illvígrar áætlunar þeirra til að myrða þjóð okkar með því að auka mengunartíðnina.

    Sýklasprengjur Bandaríkjahers

    Bandarískir heimsvaldasinnar, sem vörpuðu fyrstu sýklasprengjunum á ýmis landsvæði í nóvember 1951, hófu fullan sýklahernað frá upphafi ársins 1952. Bara á milli janúars og mars það sama ár vörpaðu þeir sýklasprengjum alls 804 sinnum á 169 svæði, þar á meðal í norðvesturhlutanum, á helstu samgönguleiðum, helstu járnbrautarlínum, járnbrautamótum og á íbúðarhverfi þar í kring.

    Þar var ekki við unað en bandarískir heimsvaldasinnar notuðu einnig efnavopn, sem eru bönnuð af alþjóðasamfélaginu.

    Þann 6. maí 1951 dreifðu þeir miklu magni af eiturgufu í ógætinni loftárás sinni á Nampó og drápu 1.379 íbúa. Þann 6. júlí og 1. september það ár vörpuðu þeir táragassprengjum og köfnunargassprengjum í og við Wonsan og á nokkrum svæðum í Norður- og Suður-Hwanghæ-héruðunum, sem skildi eftir sig ótal fórnarlömb.

    Ekki nóg með það, en þá dreifðu morðingjarnir jafnvel matvælum og peningaseðlum sem meðhöndlaðir höfðu verið með eiturefnum.

    Í tvo mánuði frá 27. febrúar til 26. apríl 1952 skutu bandarískir heimsvaldasinnar köfnunar- og táragassprengjum á stöður Kóreska Alþýðuhersins 41 sinnum og drápu saklausa borgara með því að dreifa eiturgufum á ýmis svæði í 33 lotum. Efnavopnið sem bandarískir heimsvaldasinnar notuðu mest í stríðinu voru Napalm-sprengjur, en þeir vörpuðu yfir 15 milljónum slíkra sprengja á landið okkar.

    Frá maí 1952 juku bandarískir heimsvaldasinnar umfang sýkla- og efnahernaðar og framkvæmdu stórtækar aðgerðir til endurmengunar með sjö til tíu daga millibili. Frá nóvember það sama ár reyndu þeir allar hugsanlegar leiðir og aðferðir til að menga mikilvæga staði á baklínunni og á umferðarmiðstöðum.

    Lífefnahernaðaður bandarískra heimsvaldasinna var sannarlega meðvitaður og fyrirfram ákveðinn glæpur sem miðaði að því að útrýma þjóð okkar. Bandaríkin eru svo sannarlega stærsta lífefnahernaðarglæparíki sem fyrir finnst, sem óhikað fremur aðgerðir til að útrýma öðrum þjóðum og ríkjum, óháð alþjóðalögum og heimsáliti, til að fullnægja sínum villta metnaði.

    (Rodong Sinmun)

    Athugasemd ritstjórnar: Til frekari heimilda um efna- og sýklahernað Bandaríkjahers í Kóreustríðinu þá bendum við á skjalasafnið hér á síðunni þar sem finna má ýmsar skýrslur um viðfangsefnið.

  • Ódæði heimsvaldasinna í Kóreustríðinu afhjúpuð til fulls

    Ódæði heimsvaldasinna í Kóreustríðinu afhjúpuð til fulls

    Ógætin eyðilegging

    Bandarískir heimsvaldasinnar lögðu land okkar í rúst með hinum grimmilegustu sprengju- og fallbyssuárásum sem eru fordæmalaus í sögu stríðshamfara.

    Þeir myrtu miskunnarlaust saklausa og friðsama borgara og lögðu borgir og bæi í rúst, þvert á öll ákvæði stríðslaga.

    Bara árið 1952 vörpuðu bandarískir heimsvaldasinnar yfir 200.000 sprengjum og um 15 milljónum Napalm-sprengja og skutu meira en 500 milljónum vélbyssuskota. Þeir vörpuðu yfir 52.380 sprengjum á Pjöngjang út af fyrir sig . Það samsvarar um 1.000 sprengjum á hvern ferkílómetra.

    Þeir vörpuðu yfir 428.000 sprengjum meira en 1.400 sinnum á þrem árum stríðsins. Í lok stríðsins var erfitt að finna heilt hús í Pjöngjang.

    Bandarískir heimsvaldasinnar gjöreyðilögðu 50.941 verksmiðju- og fyrirtækjabyggingar, 28.632 skólabyggingar, 4.534 byggingar heilbrigðisstofnana, þar á meðal sjúkrahús og heilsugæslustöðvar, 579 byggingar vísindarannsóknastofnana, 8.163 byggingar fjölmiðla- og menningarstofnana og 2.077.226 íbúðarhúsa, auk þess sem þeir skemmdu 155.500 hektara af túnakri. Þeir eyðilögðu einnig fjölda virkjana, þar á meðal Suphung, Jangjingang, Hochongang og Pujongang-virkjanirnar.

    Margar þjóðminjar, svo sem Yongmyong-hofið og Pubyok-skálinn í Pjöngjang, Tongmyong-húsið í Songchon-sýslu, Puyong-skálinn í Haeju, Suðurhlið Kaesong, Suðurhlið Uiju, Pohyon-hofið við Myohyang-fjall, Phyohun-hofið og Yujom-hofið við Kumgang-fjall lögðust í ösku.

    Fjöldi menningarstofnana, þar á meðal Moranbong-leikhúsið, Leikhúsið í Suður-Pyongan-sýslu og Hamhung-kvikmyndahúsið, skemmdust alvarlega.

    Mörg grimmdarverk hafa verið framin af innrásarherjum í mannkynssögunni, en sagan þekkir ekkert dæmi líkt því sem bandarískir heimsvaldasinnar frömdu, sem lögðu götur, þorp og ræktað land algjörlega í rúst, sem ekki tengdust hernaðarmannvirkjum.

    Ómannúðlegt fjöldamorð

    Fjöldamorðin sem framin voru af bandarískum heimsvaldasinnum eru ólýsanleg.

    Bandarísku heimsvaldasinnarnir, líkt og skepnur, myrtu kóreska borgara miskunnarlaust með miðaldalegri villimennsku.

    Á svæðum sem bandarískir heimsvaldasinnar hernumdu tímabundið myrtu þeir fólk miskunnarlaust án tillits til starfs, kyns eða aldurs.

    Fjöldamorðið sem bandarískir heimsvaldasinnar frömdu í Sinchon lét hina alræmdu Hitler-klíku nánast líta vel út í samanburði.

    Sögulegt afbrot bandarískra heimsvaldasinna, sem hófu innrásarstríðið og myrtu fjölda fólks miskunnarlaust, getur aldrei verið afmáð. Allar staðreyndir sýna skýrt að bandarískir heimsvaldasinnar eru dýr í mannsgervi og að Kóreustríðið hafi verið ætlað til að þurrka út kóresku þjóðina.

    Þjóð okkar, sem upplifði alla þessa þjáningu og þolraunir, háði hetjulega baráttu til að sigra óvinina og gjörsamlega tortíma mýtunni um „mátt“ bandarískra heimsvaldasinna, og sýndi mannætum bandaríska heimsveldisins hversu sterkur máttur sjálfstæðra þjóða er.

    Rodong Sinmun, 29. júní, 2026

  • Þjóðhagsáætlun fyrir maí uppfyllt í Sangwen sementsframleiðslu-samstæðunni

    Þjóðhagsáætlun fyrir maí uppfyllt í Sangwen sementsframleiðslu-samstæðunni

    30. maí, 2026 (Rodong Sinmun) — Sangwen sementsframleiðslusamstæðan í Alþýðulýðveldinu Kóreu uppfyllti þjóðhagsáætlun sína fyrir þennan mánuð 28. maí.

    Embættismenn hennar stunduðu öflugar aðgerðir og skipun til að hækka afköst kerfisbundins búnaðar og auka gæði og magn sements.

    Þeir settu meginmarkmið fyrir endurskipulagningu raðar númer 2 til að leggja langtíma framleiðslugrundvöll og unnu raunhæfa framkvæmdaáætlun og tímatafla á vísindalegan hátt. Á þessum grunni veittu þeir forgang að því að framleiða sjálfir nauðsynlega unnar málmplötur, fylgihluti og steypur.

    Deildir sem bera ábyrgð á aðalframleiðslulínum hafa stöðugt bætt afkastavísitölu kerfisbundins búnaðar til að koma af stað framleiðsluuppsveiflu.

    Embættismenn og verkamenn samstæðunnar auka nú framleiðslu með þeim sterka vilja sínum að uppfylla heiðursverkefni sitt og framvarðahlutverk við framkvæmd nýrra langtímamarkmiða.