Category: Kóreustríðið

  • Kóreuskýrslan: Glæpir Bandaríkjahers „taka fram glæpum þeim, sem Hitlersnazistarnir frömdu meðan á hernámi þeirra stóð í Evrópu.“

    Kóreuskýrslan: Glæpir Bandaríkjahers „taka fram glæpum þeim, sem Hitlersnazistarnir frömdu meðan á hernámi þeirra stóð í Evrópu.“

    Við höfum gert aðgengilega hér á skjalasafni síðunnar Kóreuskýrsluna svokölluðu, eða „Skýrslu sendinefndar Alþjóðasambands lýðræðissinnaðra kvenna, er send var til að kynna sér ofbeldi og hryðjuverk unnin af hermönnum Bandaríkjanna og Syngman Rhee í Kóreu“.

    Skýrslan kom upprunalega út árið 1951 á ensku, frönsku, rússnesku, kínversku og kóresku og hefur verið þýdd yfir á fjölda tungumála. Skýrslan, sem á ensku er titluð „We accuse!“, kom út í íslenskri þýðingu sama ár og var gefin út af Menningar- og friðarsamtökum íslenzkra kvenna, undir titlinum „Kóreuskýrslan“.

    Í skýrslunni eru skráð niður hin ýmsu hryðjuverk og stríðsglæpir Bandaríkjahers í Alþýðulýðveldinu Kóreu, þar sem meðal annars kemur fram hvernig Bandaríkjamenn og suðurkóreskir liðsmenn einræðisherrans Syngman Rhee stunduðu kerfisbundnar pyntingar á föngum, frömdu hópmorð gegn heilu fjölskyldunum þar sem saklaust fólk var lokað inni og brennt lifandi; allt frá eldri borgurum og niður í ungabörn.

    Í ensku útgáfu skýrslunnar má finna ljósmyndir sem teknar voru af meðlimum nefndarinnar, en þar má m.a. sjá rústir af kirkjum, musterum, skólum og öðrum byggingum sem jafnaðar voru við jörðu í sprengjuregni Bandaríkjahers.

    Haft var eftir vitnum í skýrslunni en ein konan, Pak Yo Suk, sagði:

    „Við héldum að Ameríkumenn væru kristnir menn, göfugmenni. Við héldum ekki að þeir myndu drepa fólk af þvílíkri grimmd”.

    Í niðurstöðum skýrslunnar koma m.a. fram eftirfarandi punktar.

    „Íbúar Kóreu eru af hernámsliði Bandaríkjamanna ofurseldir miskunnarleysi og skipulögðum eyðileggingarherferðum, sem ekki aðeins eru andstæðar allri mannúð, heldur einnig öllum hernaðarháttum og reglum um stríðsaðferðir eins og þær hafa verið samþykktar á ráðstefnum í Haag og Genf. Hernaðurinn hefur verið háður á þennan hátt:

    a. Með skipulagðri eyðileggingu á matvælum, matvælabirgðum, matvælaverksmiðjum, skógum, ávaxtagróðri og ökrum, sem og fullþroskaðri uppskeru, er kveikt var í með íkveikjusprengjum. Einnig var ráðizt á bændur, sem unnu á ökrum með uxum sínum og þeir drepnir með vélbyssuskothríð frá lágfleygum flugvélum. Með þessum aðgerðum er öll kóreanska þjóðin dæmd til hungursneyðar.

    b. Með skipulagðri eyðingu á borg eftir borg og bæ eftir bæ, sem flestar eru þannig, að óhugsanlegt er, að þær hafi nokkra hernaðarlega þýðingu og ekki einu sinni sem iðnaðarstöðvar. Tilgangur þessarar eyðileggingar er augljóslega sá, að brjóta kóreönsku þjóðina á bak aftur, bæði andlega og líkamlega. Í hinum látlausu loftárásum eru íbúðarhús, sjúkrahús, skólar o. s. frv. markvisst eyðilögð. Jafnvel bæir, sem fyrir löngu eru ekki annað en öskuhrúgur, en íbúarnir, sem af komust, búa í holum og gjótum rústanna, þessir bæir eru enn skotspónn sprengjuflugvélanna.

    c. Með fyrirfram skipulagningu á notkun þeirra vopna, gegn hinum friðsömu íbúum, sem bönnuð eru samkvæmt alþjóðasamningum. Þessi vopn eru t. d. íkveikjusprengjur, olíusprengjur, napalmsprengjur, tímasprengjur og með stöðugri vélbyssuskothríð á fólkið úr lágfleygum flugvélum.

    d. Með svívirðilegri útrýmingu kóreönsku þjóðarinnar. Í landshlutum, sem voru um stundarsakir hernumdir af Bandaríkjamönnum og her Syngman Rhee, voru hundruð þúsunda íbúa, heilar fjölskyldur, frá gömlu fólki niður í smábörn, pyntuð, barðar til bana, brenndar og grafnar lifandi. Þúsundir annarra hafa farizt af hungri og kulda í yfirfylltum fangelsum, sem þeir voru settir í án nokkurrar ákæru, án rannsóknar, yfirheyrslu eða dóms.

    Þessi múgmorð og pyntingar taka fram glæpum þeim, sem Hitlersnazistarnir frömdu meðan á hernámi þeirra stóð í Evrópu.

    Skýrslan í heild sinni er nú aðgengileg á stafrænu formi hér á vefíðunni, bæði á íslensku og á ensku, í skjalasafni okkar. Báðar útgáfur er hægt að lesa beint í vafra eða hala niður á PDF, EPUB eða á Markdown formi.