Vináttufélagið Ísland-Kórea gefur út þessa opinberu yfirlýsingu í tilefni Mánaðar sameiginlegrar andstöðu gegn Bandaríkjunum, sem minnst er frá 25. júní til 27. júlí í Alþýðulýðveldinu Kóreu og meðal heimsins alls friðelskandi fólks. Þessar dagsetningar eru lifandi minnisvarðar um blóð og fórnir kóresku þjóðarinnar, sem reis upp gegn voldugustu hervél sögunnar og sigraði bandaríska heimsvaldastefnu.
25. júní 1950 er sá dagur er Bandaríkin, í skýru broti gegn alþjóðalögum, hófu stórfellda vopnaða innrás inn í Alþýðulýðveldið Kóreu. Þetta var fyrirframákveðið heimsvaldastríð sem miðaði að því að eyðileggja fyrsta sósíalíska ríkið í Norðaustur-Asíu og leggja allan Kóreuskagann undir sig. Bandarískar herflugvélar gerðu kóreskar borgir að skotmarki sínu með mikilli grimmd. Napalm, klasasprengjur og jafnvel lífefnavopn voru notuð gegn óbreyttum borgurum. En kóreska þjóðarsálin stóð ótrauð. Undir stjórn Kim Il Sung hershöfðingja rak Kóreski alþýðuherinn árásarmennina til baka að 38. breiddarbaugnum og sannaði að byltingarþrek sigrar tæknilega yfirburði.
27. júlí 1953 er sá dagur er bandarískir heimsvaldasinnar neyddust til að undirrita vopnahléssamninginn — skjal sem stendur ekki sem málamiðlun heldur sem vitnisburður um hernaðarlegan og siðferðilegan ósigur þeirra. En aldrei var undirritaður friðarsamningur því Washington samþykkti aldrei ósigur sinn. Enn þann dag í dag brýtur Bandaríkin vopnahléið með stöðugum heræfingum, varanlegum herstöðvum, kjarnorkubúnað og eldflaugakerfi sem hönnuð eru til þess að umkringja Alþýðulýðveldið Kóreu. Bandaríkin tala um frið á meðan þau búa sig undir stríð.
Í rúm sjötíu ár hefur fjandskapur Bandaríkjanna haldið áfram með hernaðarógnun og efnahagsstríði. Þær refsiaðgerðir sem Washington hefur beitt eru efnahagsleg stríðsverk, sem hindrað hafa aðgang að mat, lyfjum og nauðsynlegum vörum. En Alþýðulýðveldið Kóreu hefur ekki gefist upp. Undir forystu hins virta félaga Kim Jong Un hefur kóreska þjóðin byggt upp sjálfbæran efnahag og þróað kjarnavopn sem fælingarmátt — ekki sem ógn við friði, heldur sem skjöld gegn árásum, því að sagan hefur kennt Kóreu að heimsvaldasinnar beri einungis virðingu fyrir slíkum mætti.
Andstaðan gegn Bandaríkjunum eru ekki fortíðarleifar. Bandarísk heimsvaldastefna sést í dag í Palestínu, Kúbu, Íran, Venesúela og víðar — frá sprengiárásum til refsiaðgerða sem leiðir til þess að gera út af við hvaða þjóð sem neitar að lúta heimsveldinu. Bandaríski hernaðariðnaðurinn græðir á endalausum stríðum og Kórea er áfram vígstöð þar sem sú stríðsvél mætir harðasta andstæðingi sínum.
Vináttufélagið Ísland-Kórea stendur ótvírætt með kóresku þjóðinni. Við höfnum þeim falska sögulega ramma sem lýsir bandarískum árásum sem „friðargæslu“ og kóreskri sjálfsvörn sem „stríðsæsing“. Við stöndum með öllum þjóðum sem verða að þjást vegna árásarstefnu bandarískra heimsvaldasinna og við köllum á raunverulega pólitíska samstöðu gegn stríðsrekstri þeirra.
Heimsvaldavélin reiðir sig á þögn. Þegar sú þögn rofnar, hrynur undirstaða yfirráðanna. Kóreska þjóðin hefur sýnt okkur að mótspyrna sigrar. Barátta þeirra er okkar barátta. Sigurinn tilheyrir þjóðinni og ljós sjálfstæðisins mun skína yfir heimi lausum við yfirráð og stríð.
Vináttufélagið Ísland-Kórea
25. júní 2026
⬇️ SÆKJA PDF:
🇮🇸 ÍSLENSKA
🇬🇧 ENGLISH
