Fyrir 76 árum, þann 28. júní, var Seúl frelsuð af Kóreska alþýðuhernum undan innrásarher bandaríska heimsveldisins og Suður-Kóreu.
25. júní árið 1950 hófu suður-kóreskar hersveitir, studdar af Bandaríkjunum, innrás norður yfir 38. breiddargráðuna. Bandaríkin spáðu því að Alþýðulýðveldið Kórea myndi falla innan 72 klukkustunda.

Kim Il Sung, forsætisráðherra Alþýðulýðveldisins Kóreu, boðaði þá til neyðarfundar og skipaði Kóreska alþýðuhernum að hefja tafarlausa gagnsókn, og reyndist það fordæmalaust afrek. Þrátt fyrir lítið varnarlið við landamærin, og her sem einungis var tilbúinn undir varnaraðgerðir, hófst gagnsóknin um alla víglínuna. Einungis 90 mínútum síðar hafði innrásin verið stöðvuð og suður-kóresku hersveitirnar voru á undanhaldi.

Kim Il Sung valdi vesturhluta víglínunnar í átt að Uíjongbú-Seúl, þar sem aðalher Suður-Kóreu var saman kominn, sem aðalárásarstefnu, og lét meginhersveitir Kóreska alþýðuhersins hefja hraða aðgerð til að frelsa Seúl.

Á þremur dögum ýmist felldu eða handsömuðu sveitir Kóreska alþýðuhersins um 60.000 óvinahermenn og komust yfir 43.000 vopn, 1.400 vörubíla, 142 fallbyssur, skip og flugvélar. Suður-kóreski herinn missti meira en helming herafla sinna.

Suður-kóreski herinn harmaði að „meira en helmingur alls hersins hafi fallið á þremur dögum fyrir fall Seúl,“ og að „herstjórnin gat aðeins staðfest 22.000 í herbók sem hafði innihaldið yfir 98.000.“
Þessu afreki Kóreska alþýðuhersins hefur verið lýst sem fordæmalausu í stríðssögunni og sem kraftaverki sem Bandaríkin gátu engan vegin séð fyrir.

